28.02.1972
Sameinað þing: 42. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2504 í B-deild Alþingistíðinda. (2734)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til að athuga þau tvö kjörbréf, sem henni voru fengin til athugunar. Það er í fyrsta lagi kjörbréf Braga Sigurjónssonar bankastjóra, sem hafði hlotið kosningu í 1. varauppbótarsæti Alþfl., og í öðru lagi kjörbréf Tómasar Árnasonar, sem hafði hlotið kosningu sem 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi. Kjörbréfanefnd er sammála um að mæla með, að þessi kjörbréf verði samþykkt og kosningin metin gild.