11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2511 í B-deild Alþingistíðinda. (2761)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur lokið athugun á kjörbréfi Ólafs Þ. Þórðarsonar skólastjóra á Suðureyri, en hann er 2. varaþm. Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi og kemur hann inn sakir þess, að Steingrímur Hermannsson alþm. er í opinberum erindagerðum erlendis.

Kjörbréfanefnd mælir með því, að kosning þm. verði metin gild og kjörbréfið samþykkt.