19.05.1972
Efri deild: 97. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2529 í B-deild Alþingistíðinda. (2817)

Starfslok deilda

Forseti (BJ):

Að öllum líkindum mun þetta verða síðasti fundur hv. d. á því þingi, sem er að ljúka störfum. Ég vil mega nota tækifærið til þess að þakka hv. þdm. fyrir ágætt og ánægjulegt samstarf á því þingi, sem nú er að ljúka, og sérstaka prúðmennsku við mig sem forseta þessarar hv. d. Ég vil einnig nota tækifærið til þess að þakka varaforsetum og skrifurum sérstaklega fyrir mikil störf og mikla hjálpfýsi við mig í forsetastörfum. Ég læt í ljósi þá ósk og von, að allir þdm. megi hafa góða heimferð og njóta góðrar heimkomu og enn fremur, að við megum öll heil hittast, þegar sumarleyfi lýkur og þing tekur til starfa á ný.