17.04.1972
Neðri deild: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í C-deild Alþingistíðinda. (3144)

242. mál, heilbrigðisþjónusta

Forseti (GilsG) :

Í tilefni af ræðu hv. 12. þm. Reykv. vil ég skýra frá því, að ég hafði að vísu gert ráð fyrir því, þar sem þetta frv. er komið fram fyrir nær viku, að taka það til 1. umr. í dag, enda er það hér á dagskránni, en ég mun verða við tilmælum hv. þm. og láta gera ráð fyrir, að 1. umr. um heilbrigðisþjónustuna fari fram á miðvikudaginn kemur.