05.05.1972
Efri deild: 76. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í C-deild Alþingistíðinda. (3242)
98. mál, Þjóðleikhús
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. bar fram fsp. um það, hvernig ég, sem formaður menntmn. hefði skilið orðalag það, sem er í 6. gr., að staðfest áætlun skuli lögð til grundvallar við fjárveitingar til leikhússins. Ég skal játa það, að mér er ekki kunnugt um það, hvað þeir, sem frv. sömdu, höfðu í huga, þegar þeir settu þessa setningu á blað, en hún er í frv. eins og það kemur frá nefndinni, sem samdi frv. Ég minnist þess að hafa einhvern tíma rekið augun í þetta orðalag, en hvernig sem það gekk nú fyrir sig, þá er ég þeirrar skoðunar, að í þessu geti ekkert annað falizt en bara það, að þegar menntmrn. undirbýr sínar till. til fjmrn. um það, hvernig fjárveitingum til leikhússins skuli hagað, þá skuli þessi staðfesta áætlun lögð til grundvallar.
Mér finnst það blasa við og liggja nokkuð í hlutarins eðli, að með setningu eins og þessari er ekki nokkur leið, að Alþ. geti afsalað sér fjárveitingavaldi hvað þetta atriði snertir um aldur og ævi, eða a. m. k. meðan þessi lög standa, m. ö. o. fjárveitingar hvers konar hljóta að vera ákveðnar í fjárlögum og ég fæ ekki séð, að það standist, að Alþ. samþykki það, að einhverjir aðrir aðilar skuli ákveða, hve há upphæð sé greidd í ákveðnum tilgangi. Ég held, að það hljóti alltaf að vera Alþ., sem eigi þar seinasta orðið, og svona í fljótu bragði átta ég mig nú ekki á því, að það eigi sér neina hliðstæðu, að slíkt ákvæði sé í lögum og því sé framfylgt með þeim hætti, að það sé einhver aðili utan Alþ., sem ákveði slíka upphæð.
Ég verð að viðurkenna það, að ég hef ekki sama fróðleik hvað snertir fjárveitingarráðstafanir og hv. 2. þm. Norðurl. e., með sína margvíslegu reynslu í sæti fjmrh. En ef það er svo að dómi ýmissa þm., að þetta geti falið það í sér, að æðsta fjárveitingavald landsins, Alþingi, sé beinlínis bundið af slíkri áætlun sem þarna er gert ráð fyrir, þá er ég algerlega sammála hv. 2. þm. Norðurl. e. um það, að það verður að breyta þessu orðalagi, þannig að þar standi, að staðfest áætlun skuli höfð til hliðsjónar. Það finnst mér auðvitað alveg sjálfsagt mál. En ég sem sagt get aðeins sagt það, að ég hef skilið þetta þannig, mér finnst eðlilegast að skilja það þannig, að átt sé við, að áætlunin sé lögð til grundvallar við fjárlagaundirbúninginn.
Úr því að ég stend nú hér, þá get ég ekki á mér setið að segja örfá orð um þessi lítilfjörlegu orðaskipti, sem hafa orðið út af framkvæmdaráði eða starfsnefnd. Ég held, að kjarni þessa máls sé ósköp einfaldur. Þarna er um hliðstæðar stofnanir að ræða. Þær eru líkar um mjög margt og þar af leiðandi þarf enginn að undrast það, að setningar í frv. og setningar í brtt. okkar séu þær sömu í mörgum tilvikum, eins og hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson sannaði hér með glæsibrag áðan. En hitt er allt annað mál, að ýmsar aðrar setningar, sem hann las ekki, eru dálítið öðru vísi orðaðar. Sumar eru þar alls ekki í frv., sem eru í brtt., og svo eru aftur aðrar setningar í frv., sem ekki eru í brtt. okkar. Það mikilvægasta er auðvitað sérstaklega þetta, að það er ekki lögð slík áherzla á það eins og var í frv., að það væri framkvæmdaráðið, sem ætti að fjalla um starfs- og fjárhagsáætlun leikhússins og undirbúa hana. Það lá nokkuð í hlutarins eðli, að þegar um var að ræða þjóðleikhúsráð, sem koma átti saman tvisvar á ári, eins og áður var ráð fyrir gert, þá hlaut starfsemi framkvæmdaráðsins að verða mikilvægari að þessu leyti, en eftir að því hefur verið breytt og eftir að þjóðleikhúsráðið kemur saman mánaðarlega, þá verður auðvitað að reikna með því, að starfs- og fjárhagsáætlun sé unnin og undir búin í nánu samstarfi og samráði við sjálft þjóðleikhúsráðið. Þetta er mesta efnisbreytingin, sem í þessu er fólgin. En fleiri breytingar eru þarna, sem tína mætti til. Það geta hv. þm. sjálfir séð með samanburði á þessum greinum, og ég sé ekki ástæðu til þess að nefna það hér (AuA: Má ég aðeins, áður en hv. þm. stígur úr stólnum? Í frv., eins og það var lagt fram, er sagt, að það standist samanburð —). Já, það skal ég nú fljótlega upplýsa, en það mun vera í 9. gr. (Gripið fram í.) Það er 2. mgr. 9. gr., eins og frv. lá fyrir: „Starfs- og fjárhagsáætlun samkv. 7. gr. skal lögð til grundvallar við fjárveitingar til leikhússins.“ (Gripið fram í.) .Já, og framkvæmdaráðið sér um, að staðfestri áætlun sé framfylgt, og fjallar auk þess um þau mál, sem leikhúsið varða. En það var nú bara þetta atriði, að það virtist vera, að hv. þm. efaðist um, að það væri rétt, að þetta hefði staðið í frv., en það stóð nú þar.