08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í D-deild Alþingistíðinda. (3337)
24. mál, ráðstafanir til að auðvelda umferð fatlaðra
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál. um ráðstafanir til að auðvelda umferð fatlaðra. N. hefur sent till. til umsagnar Öryrkjabandalagi Íslands, Umferðarráði og Arkitektafélagi Íslands. N. hafa borizt svör frá stjórnum Öryrkjabandalagsins og Arkitektafélagsins og frá framkvæmdastjóra Umferðarráðs. Þessar umsagnir eru allar jákvæðar að því er varðar till., en Arkitektafélagið hefur sérstaklega óskað eftir því í svari sínu að fá tilnefndan fulltrúa í nefndina. sem skipuð kynni að verða samkv. till. Það kemur glöggt fram, sérstaklega í umsögninni frá Umferðarráði, að ýmislegt er hægt að gera raunverulega til þess að greiða fyrir umferð fatlaðra manna.
N. leggur til að athuguðu máli, að till. verði samþ. eins og hún liggur fyrir á þskj. 24. Fyrir hönd hinna fötluðu í landinu er ástæða til að þakka þá hugulsemi, sem lýsir sér í því, að till. þessi skuli vera fram komin.