12.05.1972
Sameinað þing: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í D-deild Alþingistíðinda. (3589)

115. mál, byggingarsamþykktir fyrir sveitir og þorp

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað till. sem fyrir liggur á þskj. 143, og fengið um hana umsagnir ýmissa aðila, sem hún taldi rétt að leita álits hjá. Að athuguðu máli telur n. rétt að vekja athygli á því, að til greina kemur að endurskoða fleira í nefndum lögum en það, sem sérstaklega er vikið að í till. og það væri m.a. ástæða til að gefa gaum að næsta nágrenni kaupstaða og kauptúna.

N. ber þó ekki fram brtt. við till. í þessa átt, en leggur til að hún verði samþ. eins og hún liggur fyrir á þskj. 143.