17.12.1971
Efri deild: 32. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (365)

126. mál, almannatryggingar

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Erindi mitt upp í ræðustólinn er einvörðungu það að þakka fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna fyrir mjög jákvæðar undirtektir, að því er varðar þetta frv. Í ræðu hv. þm. Eggerts G. Þorsteinssonar komu fram nokkrar aths., sem ég kann að ræða í sambandi við tillöguflutning, sem hann boðaði, en að þessu sinni vil ég aðeins ítreka þessar þakkir mínar.