12.05.1972
Sameinað þing: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í D-deild Alþingistíðinda. (3679)

178. mál, varnir gegn ofneyslu áfengis

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. til þál. um varnir gegn ofneyzlu áfengis á þskj. 342 og fengið um hana umsögn frá Stórstúku Íslands, Landssambandi gegn áfengisbölinu og Áfengisvarnaráði. Að athuguðu máli og eftir að hafa kynnt sér þessar umsagnir hafa nm. orðið sammála um að leggja til, að till. verði samþ. með breytingu, sem tilgreind er í nál. á þskj. 704. Ég hafði áskilið mér rétt til þess að flytja sérstaka brtt. við till., en þar sem ég geri ráð fyrir, að sú brtt. kynni að valda ágreiningi, hef ég fallið frá því að flytja hana.