16.05.1972
Sameinað þing: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (3793)

166. mál, Hafsbotnsstofnun Sameinuðu þjóðanna

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Til allshn. hefur verið vísað till. til þál. um staðsetningu Hafsbotnsstofnunar Sameinuðu þjóðanna á þskj. 317. Við fyrstu athugun málsins virtist n., að þetta mál hefði heldur átt heima í hv. utanrmn. og þess vegna var ákveðið að senda henni málið til umsagnar. Nýlega barst bréf frá hæstv. utanrmn. þar sem hún mælir með till., og allshnm. voru sammála um að gera þá till. að sinni, þannig að n. mælir með því, að till. á þskj. 317 verði samþykkt eins og hún liggur fyrir á því þskj.