14.03.1972
Sameinað þing: 48. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í D-deild Alþingistíðinda. (3959)

84. mál, landgræðsla og gróðurvernd

Frsm. (Bjarni Guðnason):

Herra forseti. Allshn. Sþ. hefur fjallað um þáltill. þá, sem hér kom fram snemma á þessu þingi, um landgræðslu og gróðurvernd. Allshn. lætur frá sér fara svo hljóðandi nál. á þskj. 401:

„Nefndin hefur rætt mál þetta á fundum sínum og athugað umsagnir, sem borizt hafa frá Landgræðslu ríkisins, Skógrækt ríkisins og landgræðslunefnd Landverndar. Þar eð ríkisstj. hefur, frá því að þessi till. kom fram, skipað landgræðslunefnd til að fjalla um þau mál, sem till. gerir ráð fyrir, leggur n. til, að málinu verði vísað til ríkisstj.

Ég sem frsm. hef engu við þetta að bæta.