16.11.1971
Sameinað þing: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í D-deild Alþingistíðinda. (4718)
905. mál, stofnun fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins bæta hér við örfáum orðum, vegna þess að mér virðist hv. 3. þm. Sunnl. hafa misskilið nokkuð ummæli mín. Ég hef aldrei dregið í efa þörfina á fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum, en það, sem ég ræddi um í mínu svari, var það, að ég væri ekki sannfærður um, að sá skóli, sem þar yrði stofnaður, ætti að vera nákvæm eftirmynd af þeim skóla, sem settur var hér í Reykjavík í haust. Þetta er það atriði, sem ég tel þurfa nánari athugunar, áður en nýir skólar bætast við, hvort þeir eiga að vera nákvæmlega eins að því marki, sem þeir ná. Ætlunin er samkv. lögunum, að skólinn í Vestmannaeyjum hafi ekki þá framhaldsdeild, sem ætlazt er til, að hinn skólinn hafi. Athuga ber, hvort rétt er, að þarna sé að einhverju marki verkaskipting milli þessara skóla.
Þetta vildi ég aðeins taka fram til að gera mál mitt að fullu skýrt.