25.11.1971
Sameinað þing: 17. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í D-deild Alþingistíðinda. (4813)

908. mál, stofnlán atvinnuveganna

Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Ég vildi aðeins leiðrétta það, sem fram kom hjá hæstv. viðskrh. Ég tel ekki, að orð mín hafi fallið þannig, að ég væri nokkuð að væna víðkomandi stofnanir, þ.e. Fiskveiðasjóð og Seðlabanka, um, að þær mundu ekki fara eftir fyrirmælum. Mín fsp. gekk út á það eitt, hvenær þessi breyting ætti að koma til framkvæmda.