08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í D-deild Alþingistíðinda. (4878)
88. mál, augnlækningar
Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Á þskj. 99 leyfi ég mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. heilbr.- og trmrh. um augnlækningar:
1. Hvað eru margir augnlæknar starfandi utan Reykjavíkur?
2. Hvaða þjónusta er veitt í augnlækningum úti á landsbyggðinni?
3. Hvaða ráðstafanir eru á döfinni til þess að veita viðunandi þjónustu vegna augnlækninga úti á landsbyggðinni?
Ég hafði fregnir af því í haust, að mjög langur biðtími væri að komast að í augnlæknaþjónustu á Akureyri og það svo, að skipti vikum og jafnvel mánuðum, og nokkuð hefði borið á því, að fólk, sem var haldið augnsjúkdómum, yrði að taka sig upp síðla nætur með nesti til að hefja bið utan dyra fyrst og síðan inni á stofunni eftir augnlækni. Mér þóttu þetta merkilegar fréttir, og ég hringdi norður til að fá það staðfest, og var þetta staðfest við mig, að slík væri aðsóknin að þessum augnlækni. Um tíma í haust þurfti hann að fara utan, til Bandaríkjanna, og var þá ástand mjög slæmt á stóru svæði raunar á Norðurlandi og Norðausturlandi. Af því tilefni bar ég þessa fsp. fram. En svo atvikaðist, að rétt í þann mund er fsp. kom fram, veiktist hæstv. ráðh., og því er hún búin að liggja fyrir þinginu nokkuð lengi, en ég vænti þess, að henni verði svarað núna.