29.02.1972
Sameinað þing: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í D-deild Alþingistíðinda. (4926)
164. mál, nefndaskipanir og ráðning nýrra starfsmanna
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Fsp. hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasonar eru á þskj. 313, og þetta eru allumfangsmiklar fsp., sem því miður tekur nokkuð langan tíma að svara. Það er spurt um:
„1. Hvaða nefndir hefur ríkisstj. skipað, síðan hún tók til starfa, hvert er verkefni þeirra og hverjir eiga sæti í þeim?
2. Hver hefur orðið kostnaður við störf hverrar einstakrar þessara nefnda?
3. Hvaða nýja starfsmenn hefur ríkisstj. ráðið í stjórnarráðið, síðan hún tók til starfa?
4. Hver verða heildarlaun þeirra á yfirstandandi ári!“
Ég hafði þann hátt á að senda þessar fsp. til hinna einstöku rn., og mér hefur borizt svar frá hverju rn. fyrir sig undirritað af ráðuneytisstjóra eða staðgengli hans, þannig að þær upplýsingar, sem ég hér gef, eru á ábyrgð þeirra. Og þó að það hefði að vísu mátt gera styttri skýrslu með því að draga þetta saman, þá vel ég nú þann kostinn að lesa þetta upp eins og það kemur frá hverju rn. fyrir sig, þannig að þar komist engin tortryggni að um, að farið sé rétt með það, sem hér er um að tefla.
Þá rek ég rn. í þeirri röð, sem þau eru nefnd í reglugerð um stjórnarráðið nr. 96 1969. Og þá er það fyrst forsrn. Frá því er svo hljóðandi greinargerð:
„Ríkisstj. samþykkti á fundi sínum 20. júli 1971, að forsrh. hefði forgöngu um skipun fimm manna nefndar til þess að vera ríkisstj. til ráðuneytis um starfsaðferðir og vinnubrögð í landhelgismálinu. Voru eftirtaldir menn tilnefndir af þingflokkunum: Finnbogi Rútur Valdimarsson af hálfu SF, Gylfi Þ. Gíslason af hálfu Alþfl., Jóhann Hafstein af hálfu Sjálfstfl., Lúðvík Jósepsson af hálfu Alþb. og Þórarinn Þórarinsson af hálfu Framsfl. Enginn kostnaður hefur verið vegna þessarar nefndar.
16. des. 1971 voru Egill Sigurgeirsson hrl. og Ólafur Björnsson prófessor skipaðir til þess að reyna að koma á sáttum milli stjórnar Laxárvirkjunar og stjórnar Félags landeigenda við Laxá. Kostnaður við þessa sáttanefnd til þessa hefur verið 8457 kr. Jafnframt er svo þess að geta, að 1. okt. 1971 var ákveðið, að nefnd til þess að endurskoða vatnalög nr. 15 20. júní 1923 og semja frv. til nýrra vatnalaga hætti störfum, m.a. vegna þess að nú eru nokkur dómsmál á ferðinni í sambandi við vatnalög, þannig að niðurstaðan er þá tvær nefndir, en ein hefur verið lögð niður.“
Til viðbótar þessu vil ég geta um það, sem rétt er að færa undir forsrn., að af ríkisstj. hálfu voru á s.l. hausti tilnefndir þrír menn í svokallaða atvinnumálanefnd vegna Siglufjarðar og í þeirri nefnd voru Ragnar Arnalds, Jón Kjartansson og Tryggvi Helgason. Þessir menn luku störfum í októberlok, og kostnaður við störf þeirra var 61 154 kr.
Þetta var um nefndir í forsrn., og auk þess vil ég segja það, að eins og mönnum er kunnugt, þá voru fengnir aðstoðarmenn til handa sáttasemjara í vinnudeilum í tveim eða þrem tilvikum, en það liggur ekki fyrir, hver kostnaður hefur orðið vegna þess.
Þá er það, að ráðinn hefur verið ritari blaðafulltrúa ríkisstj. í forsrn. Árslaun framangreinds ritara eru nú 322 830 kr.
Þá kemur næst dómsmrn., sem svarar svo hljóðandi: „Rn. skírskotar til bréfs forsrn. dags. 9. þ. m., þar sem óskað er upplýsinga um skipun nefnda á vegum rn. og ráðningu starfsmanna til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins á tímabilinu frá því að núv. ríkisstj. tók til starfa, en upplýsinga þessara er leitað vegna fsp. í á þskj. 313 til forsrh. Af þessu tilefni skal tekið fram, að á umræddu tímabili hefur ekki verið skipuð nein ný nefnd eða ráðið í neitt nýtt starf á vegum þess rn. og þá ekki heldur komið kostnaður af slíkum aðgerðum.
Baldur Möller.“
Þá kemur félmrn.
„Á vegum félmrn. hafa eftirtaldar nefndir verið skipaðar í tíð núv. ríkisstj.:
1. Tekjustofnanefnd. Hefur lokið störfum. Þóknun ekki ákveðin enn.
2. Orlofsnefnd. Þóknun ekki ákveðin enn.
3. Vinnutímanefnd. Hefur lokið störfum. Þóknun ekki ákveðin enn.
4. Verkalýðs- og samvinnuskólahreyfingarnefnd. Þóknun ekki ákveðin enn.
5. Nefnd til að endurskoða lög um byggingarsamvinnufélög, nýskipuð.
6. Nefnd til að endurskoða lög um orlof húsmæðra. Hefur lokið störfum. Þóknun ekki ákveðin.
7. Samkv. lögum nr. 30 1970 hafa verið skipaðar stjórnir verkamannabústaða í eftirtöldum sveitarfélögum: Dalvíkurhreppi, Hólmavík, Stokkseyrarhreppi. Þóknun ekki ákveðin enn.
8. Aðstoðarmaður ráðh., 27. launaflokkur, árslaun 552 240 kr.
Hjálmar Vilhjálmsson.“
Þarna sé ég, að ekki eru tilgreind nöfn þeirra manna, sem hafa starfað í þessum nefndum, svo sem átti að vera samkv. fsp., en það er vangá hjá mér, að ég hef ekki gengið eftir því, að það væri tekið fram. En eins og menn heyrðu, hafa langflestar af þessum nefndum, sem þarna eru taldar, þegar lokið störfum.
Þá kemur frá fjmrn.
„Til svars erindis forsrn. dags. 9. þ. m. við fsp. Gylfa Þ. Gíslasonar til forsrh. upplýsir rn. eftirfarandi: Eftirgreindar nefndir hafa verið skipaðar af fjmrn., síðan ríkisstj. tók til starfa:
15. júli 1971: Nefnd til að annast samræmingu sjónarmiða allra aðila, sem hagsmuna geta átt að gæta um stöðlun á sviði bókhalds og reikningsskila. Atli Hauksson, Jóhann Ingjaldsson, Sigurður Stefánsson, Steindór Ólafsson, Sveinn Björnsson, Ólafur Nilsson formaður nefndarinnar.
10. ágúst 1971: Nefnd um tekjuöflun ríkisins. Björn Jónsson, Guðmundur Skaftason, Gunnar R. Magnússon, Jón Sigurðsson formaður nefndarinnar, Magni Guðmundsson.
24. sept. 1971: Nefnd til að gera úttekt á fjárhagsaðstöðu Slippstöðvarinnar h.f. Árni Halldórsson, Árni. Vilhjálmsson, Guðmundur Skaftason, Ingólfur Árnason, Jón Sigurðsson formaður nefndarinnar.
27. okt. 1971: Nefnd, sem fjallar um aukatekjur sýslumanna og bæjarfógeta. Baldur Möller, Björn Björnsson, Björn Hermannsson formaður nefndarinnar, Sigurgeir Jónsson.
Aths.: Eldri skattanefnd var lögð niður, og slippstöðvarnefnd hefur lokið störfum. Laun slippstöðvarnefndar námu samtals 135 þús. kr. og kostnaður var nálægt 40 þús. Kostnaður hefur ekki fallið til vegna annarra nefnda, og er engin leið að gera áætlun um kostnað þeirra vegna.
Á vegum fjmrn. hefur verið ráðið sem hér segir:
Í ríkisbókhaldi: Bætt hefur verið við stúlku hálfan daginn við vélabókhald, Þuríði Dan Jónsdóttur, vegna aukinna verkefna við vélfærslur, bókhald ríkisstofnana o.fl. Einar Sverrisson er erlendis við nám. Í stað hans hefur verið ráðinn starfsmaður til eins árs, Sigtryggur Þórhallsson.
Við embætti ríkisféhirðis: Bætt hefur verið við skrifstofustúlku allan daginn, Guðrúnu Haraldsdóttur, vegna aukningar verkefna, fjárreiða stofnana o.fl.
Í skrifstofu rn. sjálfs: Ingibjörg Björnsdóttir hefur verið ráðin til starfa hálfan daginn sérstaklega til aðstoðar launadeildarstjóra á móti annarri hálfsdagsstúlku, sem fyrir var. Þorsteinn Geirsson hefur verið ráðinn með þriggja mánaða samningi til launadeildar hálfan daginn vegna álags við afgreiðslu í kjaramálum.“
Svo er nú hér, sem eiginlega á ekki við í þessu falli vegna fsp.: Alda Jónsdóttir hætti störfum í des. Í stað hennar var ráðin Elma Kristjánsdóttir. Þar er ekki um nýtt starf að tefla. Þá hefur og verið ráðinn bifreiðarstjóri ráðh., Alvar Óskarsson, sem jafnframt annast eftirlit með einkaafnotum af ríkisbifreiðum.
Svar við 4. lið fsp. er.:
Ríkisbókhald: Þuríður Dan Jónsdóttir, 106 341 kr. í laun. Embætti ríkisféhirðis: Guðrún Haraldsdóttir, 227 026 kr. Rn.: Ingibjörg Björnsdóttir, 114 025 kr., Alvar Óskarsson, 337 662 kr.
Í hagsýsludeild hefur ekki komið til ráðningar neins starfsfólks. Í ríkisendurskoðun hefur einn nýr starfsmaður, Stefán Svavarsson viðskiptafræðingur, verið ráðinn til endurskoðunarstarfa á þessu tímabili. Áætluð laun árið 1972 eru 449 484 kr.
Hagstofa Íslands. Þar hafa engar nefndir verið skipaðar og aðeins ráðinn einn starfsmaður í stað annars, sem hætti störfum.
Heilbr.- og trmrn.: „Með vísan til bréfs yðar frá 9. þ. m. varðandi nefndaskipanir, ráðningu nýrra starfsmanna o.fl. sendast yður eftirfarandi upplýsingar, er skipta ber á eftirfarandi hátt: 1. Nýjar nefndir. 2. Tilnefning í eldri nefndir. 3. Nýir starfsmenn í rn. og 4. Heildarlaun nýrra starfsmanna á yfirstandandi ári. Kostnaður við störf nýrra nefnda liggur ekki fyrir, þar sem þóknun til nm. hefur ekki enn verið ákveðin.“
Og þá eru það nýjar nefndir:
„9. ágúst 1971. Nefnd til þess að endurskoða allt tryggingakerfið. Geir Gunnarsson alþm. formaður, Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur, Halldór S. Magnússon viðskiptafræðingur, Tómas Karlsson ritstjóri, Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri.
17. ágúst 1971. Nefnd til þess að semja drög að reglugerð, sbr. 13. gr. laga um eiturefni og hættuleg efni nr. 851 1968. Benedikt Sigurjónsson hrl. formaður, Alfreð Gíslason læknir, Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Vilhjálmur Lúðvíksson efnaverkfræðingur.
18. ágúst 1971. Nefnd til að gera tillögur og annast undirbúning að byggingu lokaðs hælis fyrir drykkjusjúklinga. Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur formaður, Sveinn Ragnarsson félagsmálastjóri, Þórður Möller yfirlæknir.
28. okt. 1971. Nefnd til að framkvæma endurskoðun á gildandi reglum um afgreiðslutíma lyfjabúða í Reykjavík. Sigurður Sigurðsson landlæknir formaður, Ívar Daníelsson lyfsali, Ólafur Jónsson læknir, Rósa Tómasdóttir lyfjafræðingur.
12. nóv. 1971. Nefnd til undirbúnings byggingar geðdeildar við Landsspítalann. Tómas Helgason prófessor formaður, Ásgeir Bjarnason forstjóri, Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur, Guðrún Guðnadóttir forstöðukona.
20. jan. 1972. Nefnd til að semja löggjöf fyrir tryggingadóm. Auður Þorbergsdóttir lögfræðingur formaður, Snorri Hallgrímsson prófessor, Erlendur Lárusson tryggingafræðingur.
1. febr. 1972. Stjórn Þroskaþjálfaskóla Íslands: Sigríður Ingimarsdóttir formaður, Ingibjörg Haraldsdóttir þroskaþjálfanemi, Katrín Guðmundsdóttir þroskaþjálfi og Sigurjón Björnsson sálfræðingur.
3. febr. 1972. Nefnd til að endurskipuleggja lyfjaverzlunina með því að tengja hana við heilbrigðisþjónustuna og setja hana undir félagslega stjórn. Almar Grímsson formaður, Árni Einarsson framkvæmdastjóri Reykjalundi, Einar Benediktsson lyfjafræðingur, Kjartan Jóhannsson verkfræðingur, Steingrímur Kristjánsson lyfsali.“
Síðan er svo yfirlit yfir eldri nefndir, sem endurskipað hefur verið í. Um það er ekki spurt, og ég sé ekki ástæðu til þess að lesa það. En nýir starfsmenn hafa verið ráðnir sem hér segir:
21. sept. 1971. Frú Adda Bára Sigfúsdóttir skipaður aðstoðarmaður heilbrmrh. 1. des.1971. Almar Grímsson lyfjafræðingur skipaður deildarstjóri í heilbr.- og trmrn. Laun þessara tveggja starfsmanna eru talin 1094 448 kr.
Þá er það iðnrn. Svar þess er svo hljóðandi:
„Rn. hefur borizt bréf forsrn. dags. 9. þ. m. ásamt tilmælum um svör varðandi fsp. til forsrh. frá Gylfa Þ. Gíslasyni á þskj. 313 um nefndaskipanir, ráðningu nýrra starfsmanna o.fl., síðan ríkisstj. tók til starfa. Á þeim tíma hafa á vegum iðnrn. verið skipaðar 10 nefndir til úrlausnar einstakra verkefna, sbr. hjálagt yfirlit. Fimm nefndir, er áður höfðu verið skipaðar af rn., hafa verið lagðar niður. Tveir nýir starfsmenn hafa verið lausráðnir til iðnrn. á umræddum tíma, sbr. hjálagt yfirlit.
Yfirlit yfir nefndirnar og þá, sem í þeim eru:
1. Með bréfi rn. dags. 30. ágúst 1971 skipaði rn. nefnd til þess að fjalla um vandamál niðursuðuiðnaðarins með hliðsjón af málefnasamningi ríkisstj. Nefndina skipuðu: Ragnar Arnalds lögfræðingur, Steingrímur Hermannsson, Ólafur Hannibalsson. Nefndin lauk störfum um síðustu áramót. Kostnaður við störf nefndarinnar var 373 533 kr. samtals.
2. Með bréfi rn. dags. 30. ágúst 1971 skipaði rn. í samvinnu við sjútvrn. nefnd til þess að kanna þörfina á endurnýjun íslenzka fiskiskipaflotans og afkastagetu hérlendra skipasmíðastöðva og til þess að gera tillögur um ráðstafanir, sem tryggi skipasmiðastöðvunum verkefni a.m.k. þrjú ár fram í tímann. Nefndina skipuðu: Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóri, Guðjón Jónsson formaður Félags járniðnaðarmanna, Jón Arnalds ráðuneytisstjóri, Jón Sveinsson forstjóri og Ottó Schopka framkvæmdastjóri. Nefndin lauk störfum í des. 1971. Kostnaður við störf nefndarinnar var 66 þús. kr., sem eru þóknanir.
3. Með bréfi rn. dags. 31. ágúst 1971 skipaði rn. nefnd til þess að taka til athugunar skýrslu H.K. Hygen & Co A/S frá 25. maí 1971 um íslenzkan vefjar- og fataiðnað og vinna að framgangi þeirra tillagna, sem þar eru gerðar og nefndin mælir með að fram nái að ganga. Nefndina skipuðu: Gunnar Guttormsson hagræðingarráðunautur, Þorvarður Alfonsson, Haukur Björnsson, Jón Ingimarsson. Nefndin skilaði grg. til rn. fyrir áramót 1971–1972. Kostnaður við störf nefndarinnar hefur eigi verið greiddur.
4. Með bréfi rn. dags. 1. sept. 1971 og samkv. 2. gr. laga nr. 21 frá 5. apríl um olíuhreinsunarstöð á Íslandi skipaði rn. nefnd til þess að afla upplýsinga um mengunarhættu, sem stafa kann af olíuhreinsunarstöð. Nefndina skipa: Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóri, dr. Agnar Ingólfsson dýrafræðingur og Vilhjálmur Lúðvíksson efnaverkfræðingur. Nefndin hefur eigi lokið störfum og kostnaður eigi verið greiddur vegna hennar.
5. Með bréfi rn. dags. 28. sept. 1971 skipaði rn. nefnd til ráðuneytis um viðræður við erlenda aðila, sem áhuga hafa á þátttöku í orkufrekum iðnaði ásamt Íslendingum. Nefndin annist viðræður við slíka aðila í samráði við iðnrn. Nefndina skipa: dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, Ingi R. Helgason lögfræðingur, Ragnar Ólafsson hrl. og Steingrímur Hermannsson framkvæmdastjóri. Kostnaður vegna starfa nefndarinnar hefur numið til þessa 300 þús. kr.
6. Með bréfi rn. dags. 18. nóv. 1971 skipaði rn. nefnd til þess að fjalla um skipulag orkuöflunar og orkudreifingar hérlendis og semja frv. til 1. um þessi efni. Nefndina skipa: Jakob Gíslason orkumálastjóri, Árni Snævarr ráðuneytisstjóri, Sigurður Thoroddsen verkfræðingur, Jakob Björnsson deildarverkfræðingur, Benedikt Sigurjónsson hæstaréttardómari, dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og Guðjón Guðmundsson skrifstofustjóri. Kostnaður hefur enginn verið greiddur.
7. Með bréfi rn. dags. 17. des. 1971 skipaði rn. nefnd til þess að taka til athugunar skýrslu dags. í sept. 1971, sem gerð var af Oy MEC-RASTOR AB um íslenzka sælgætisiðnaðinn, og vinna að framgangi þeirra tillagna, sem þar eru gerðar og nefndin mælir með að nái fram að ganga. Nefndina skipa: Þröstur Ólafsson hagfræðingur, Snorri Pétursson samkv. tilnefningu Iðnlánasjóðs, Guðmundur Þ. Jónsson tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands og Haukur Björnsson samkv. tilnefningu Félags ísl. iðnrekenda. Kostnaður hefur enginn verið greiddur.
8. Með bréfi rn. dags. 17, des. 1971 skipaði rn. nefnd til þess að taka til athugunar skýrslu, dags. í sept. 1971, sem gerð var af civilekonom Sten Hemmingson og Jarl F: son Holmgren um islenzka málmiðnaðinn, og vinna að framgangi þeirra tillagna, sem þar eru gerðar og nefndin mælir með að nái fram að ganga. Nefndina skipa: Þröstur Ólafsson hagfræðingur formaður, Guðjón Jónsson formaður Félags járniðnaðarmanna, Gísli Benediktsson samkv. tilnefningu Félags ísl. iðnrekenda, Þorvarður Alfonsson samkv. tilnefningu Iðnþróunarsjóðs og Guðjón Tómasson hagræðingarráðunautur samkv. tilnefningu Landssambands iðnaðarmanna. Kostnaður vegna nefndarinnar hefur enginn verið greiddur.
9. Með bréfi rn. dags. 17. des. 1971 skipaði rn. nefnd til þess að taka til athugunar skýrslu, dags. í ágúst 1971, sem gerð var af civiling. Per Selrod um íslenzka húsgagna- og innréttingaiðnaðinn, og vinna að framgangi þeirra tillagna, sem þar eru gerðar og nefndin mælir með að nái fram að ganga. Nefndina skipa: Þröstur Ólafsson hagfræðingur formaður, Haukur Björnsson framkvæmdastjóri samkv. tilnefningu Félags ísl. iðnrekenda, Snorri Pétursson samkv. tilnefningu iðnþróunarsjóðs, Ásgeir J. Guðmundsson samkv. tilnefningu Landssambands iðnaðarmanna og Kristbjörn Árnason samkv. tilnefningu Alþýðusambands Íslands. Kostnaður vegna nefndarinnar hefur enginn verið greiddur.
10. Með bréfi rn. dags. 27. des. 1971 skipaði rn. nefnd til þess að endurskoða rekstur ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg. Skulu störf nefndarinnar við það miðuð að tryggja ríkisprentsmiðjunni húsakost, vélabúnað og aðra aðstöðu til þess að gegna sem bezt verkefnum sínum, m.a. í þágu Alþingis, stjórnarráðsins og Háskóla Íslands. Jafnframt er nefndinni falið að semja ný lög um ríkisprentsmiðjuna Gutenberg og rekstrarfyrirkomulag hennar. Nefndina skipa: Guðlaugur Þorvaldsson prófessor formaður, Árni Þ. Árnason skrifstofustjóri iðnrn., Eysteinn Jónsson forseti Sþ., Kári B. Jónsson prentari og Stefán Ögmundsson prentari. Kostnaður vegna nefndarinnar hefur enginn verið greiddur.
Svo er það viðvíkjandi starfsmönnunum. Frá og með 1. jan. 1972 voru lausráðnir til 12 mánaða tveir sérfræðilegir aðstoðarmenn við iðnrn., dr. Örn Erlendsson hagfræðingur og Þröstur Ólafsson hagfræðingur. Taka þeir laun samkv. 26. launaflokki opinberra starfsmanna, og mundu laun þeirra því verða 525 þús. til hvors eða í millj. 50 þús. kr.“
Þá er hér frá landbrn. Þess svar er svo hljóðandi:
„Í tilefni af fsp. hr. alþm. Gylfa Þ. Gíslasonar um nefndaskipanir og kostnað við þær og um skipanir starfsmanna eftir 14. júlí 1971 skal eftirfarandi upplýst:
14. sept. 1971 var skipuð nefnd til að endurskoða lög um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum. Nefndina skipa: Sveinn Tryggvason framkvæmdastjóri formaður, Ólafur Björnsson prófessor, Guðmundur Þorsteinsson bóndi Skálpastöðum, Þorvaldur G. Jónsson fóðureftirlitsmaður, Gunnar Guðbjartsson bóndi Hjarðarfelli, Hjalti Gestsson ráðunautur Selfossi, Jónas Jónsson deildarstjóri Reykjavík, Ingi Tryggvason bóndi Kárhóli og Ólafur Andrésson bóndi Sogni. Sama dag og nefndin var skipuð var leyst frá störfum nefnd, sem skipuð var 6. des. 1968 til þess að athuga ýmsa þætti landbúnaðarmála, en þá nefnd skipuðu Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur formaður, Gunnar Guðbjartsson bóndi, Einar Ólafsson bóndi, Vilhjálmur Hjálmarsson alþm., Ólafur Björnsson alþm., Jón horsteinsson alþm. og Björn Jónsson alþm.
Hinn 8. okt. 1971 var skipuð nefnd til þess að vinna að aðstoð við bændur, sem verst eru settir fjárhagslega. Nefndina skipuðu: Árni Jónasson formaður, Sveinbjörn Dagfinnsson skrifstofustjóri og Sigurður J. Líndal bóndi Lækjamóti. Nefnd þessi var skipuð í framhaldi af störfum nefndar, sem skipuð var 19. marz 1971 til að vinna að athugun á hag og afkomu þeirra bænda, sem eiga við erfiðasta fjárhagsafkomu að búa. Nefndina skipuðu: Jón Þorsteinsson alþm., Þórhallur Tryggvason bankastjóri, Sigurður J. Líndal bóndi Lækjamóti, Lárus Ágúst Gíslason hreppstjóri Miðhúsum og Árni Jónasson, sem var formaður nefndarinnar.
Hinn 18. okt. 1971 var skipuð nefnd til að endurskoða lög um kauprétt á jörðum, ábúðarlög, ættaróðul o.fl. Nefndina skipa: Ásgeir Bjarnason alþm. formaður, Sveinbjörn Dagfinnsson skrifstofustjóri og Árni Jónasson erindreki Stéttarsambands bænda.
30. nóv. 1971 skipaði ráðh. nefnd til að gera heildaráætlun um allsherjarlandgræðslu og skipulega nýtingu landsgæða. Nefndina skipa: Eysteinn Jónsson alþm. formaður, Ingvi Þorsteinsson sérfræðingur, Jónas Jónsson ráðunautur, Haukur Ragnarsson tilraunastjóri, Pálmi Jónsson alþm., Sigurður Blöndal skógarvörður og Þorvaldur G. Jónsson fóðureftirlitsmaður.
Hinn 6. jan. 1972 var svo skipuð nefnd til þess að rannsaka, hvort möguleikar séu á útflutningi á framleiðsluvörum gróðurhúsa, sbr. þál. um það efni frá 5. apríl 1971. Nefndina skipa: Þorvaldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna formaður, Óli Valur Hansson garðyrkjuráðunautur Búnaðarfélags Íslands og Sveinn Indriðason stórkaupmaður Reykjavík.
Eins og menn sjá, hafa þarna verið skipaðar fimm nefndir en tvær verið lagðar niður, þannig að segja má, að það sé um þrjár nefndir þarna að ræða. Engar greiðslur hafa átt sér stað til þeirra nefnda, sem skipaðar hafa verið eftir 14. júlí s.l.
Hinn 29. sept. s.l. var Jónas Jónsson ráðinn landbrh. til aðstoðar, og starfar hann undir rn. sem deildarstjóri. Í sept. lét ritari í rn. af störfum, og um s.l. áramót hætti Torfi Þórðarson fulltrúi fyrir aldurs sakir. Ekki hefur verið ráðið neitt nýtt fólk í stað þess, sem látið hefur af störfum.“
Þá er það menntmrn., mjög langt svar:
„Sem svar við bréfi forsrn. dags. 9. þ. m., þar sem leitað er upplýsinga um nefndaskipan og ráðningu nýrra starfsmanna o.fl. vegna fsp. til forsrh. frá dr. Gylfa Þ. Gíslasyni, tekur rn. fram eftirfarandi:
Á tímabilinu 14. júlí 1971 til þessa dags hefur menntmrn. skipað 11 nefndir, og fylgir bréfi þessu sérstakt yfirlit um hverja nefnd. Einungis ein þeirra hefur fengið greiðslu, námsskrárnefnd í tónmennt, en ekki verið tekin ákvörðun um, hvort hinar nefndirnar verða launaðar eða ekki, og ekki vitað, hvort eða hvaða kostnaður verður við störf þeirra. Af umræddum 11 nefndum eru sjö skipaðar samkv. ákvörðunum, sem fyrr. menntmrh., dr. Gylfi Þ. Gíslason, hafði tekið. Hér er ekki talin með skipun íþróttanefndar ríkisins, sem starfar samkv. íþróttalögum, en ef forsrh. telur, að hana skuli telja með, þá fylgir einnig yfirlit um, hverjir eiga sæti í henni, en hún var síðast skipuð 23. des. 1971.
Að því er varðar 3. og 4. lið fsp., hvaða nýja starfsmenn ríkisstj. hafi ráðið í stjórnarráðið síðan hún tók til starfa og hver verði heildarlaun þeirra á yfirstandandi ári, þá er því til að svara að því er menntmrn. varðar, að enginn nýr starfsmaður hefur verið ráðinn í rn. á þessu tímabili.“
Ég held, að það lengi tímann óþarflega að lesa upp, hverjir eru í þessum 11 nefndum, en auðvitað geta menn fengið það samt, ef þeir hafa áhuga á því. Ég ætla þá að sleppa því að sinni.
Samgrn. Þar eru svörin þessi:
„Rn. skipaði með bréfi dags. 2. þ.m. þriggja manna nefnd til að endurskoða lög um ferðamál nr. 4 frá 1969. Í nefndinni eiga sæti: Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri formaður, Heimir Hannesson hdl. og Lúðvík Hjálmtýsson framkvæmdastjóri.
Með bréfi rn. dags. 22. nóv. fyrra árs var fjölgað um tvo fulltrúa í nefnd til að endurskoða hafnalög nr. 48 1967. Þessir fulltrúar eru Ragnar Sigurðsson hafnarstjóri og Tryggvi Helgason sjómaður. Enginn kostnaður hefur enn orðið af starfsemi ofangreindra nefnda. Laun aðstoðarmanns ráðh., frú Steinunnar Finnbogadóttur, eru greidd að hálfu af rn.“
Þá er það sjútvrn. Svar þess er svo hljóðandi:
„Rn. hefur skipað þrjár nefndir síðan núv. ríkisstj. tók til starfa.
a. Nefnd til að endurskoða gildandi reglur um vátryggingu fiskiskipa og rekstur Tryggingasjóðs fiskiskipa. Nefndina skipa: Jón Erlingur Þorláksson tryggingafræðingur formaður, Matthías Bjarnason alþm., Jón Sigurðsson hagrannsóknastjóri, Jón Sigurðsson skrifstofustjóri, Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri, Sigurður H. Egilsson framkvæmdastjóri, K. Guðmundur Guðmundsson forstjóri.
b. Nefnd til að endurskoða ýmis gildandi ákvæði um fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi. Nefndina skipa: Þórður Ásgeirsson skrifstofustjóri formaður, Bergsteinn Á. Bergsteinsson fiskmatsstjóri, Gunnar Hafsteinsson hdl., Ingvar Hallgrímsson forstjóri, Páll Guðmundsson skipstjóri, Þorsteinn Gíslason skipstjóri.
c. Nefnd til að endurskoða gildandi lög um botnvörpuveiðar í landhelgi. Nefndina skipa: Gils Guðmundsson alþm. formaður, Karvel Pálmason alþm., Jón Árm. Héðinsson alþm., Guðlaugur Gíslason alþm. og Ingvar Gíslason alþm.
Enginn kostnaður hefur verið greiddur enn þá vegna þessara nefnda.
Þórður Eyþórsson fulltrúi hefur verið ráðinn í 2.5 hluta ársstarfs. Heimild til þessarar ráðningar hefur verið fyrir hendi síðan 1970. Arnmundur S. Backman hefur verið ráðinn fulltrúi ráðherra samkv. heimild í lögum um stjórnarráð. Laun þessara tveggja manna eru áætluð um 700 þús. kr. á ári.“
Utanrrn. Svar þess er á þessa lund:
„Fjölgað var um tvo menn í varnarmálanefnd frá 1. okt. 1971. Hvor framangreindra manna hefur 5 200 kr. á mánuði í þóknun fyrir störf sín. Greiðslur til þeirra nema því samtals 52 þús. miðað við febrúarlok.
Í utanrrn. hefur ekki verið um neina nýja starfsmenn að ræða, en blaðafulltrúi hins vegar færður úr utanrrn. í forsrn. samkv. reglugerð þar um.“
Þá er það viðskrn.:
„Sem svar við bréfi forsrn. dags. 9. þ. m. vegna fsp. frá Gylfa Þ. Gíslasyni vill rn. láta í té eftirfarandi upplýsingar:
Viðskrh. skipaði hinn 26. nóv. 1971 nefnd með einum fulltrúa frá hverjum þingflokki til að vera ríkisstj. til ráðuneytis við athugun á málum, sem varða samningsgerð Íslands við Efnahagsbandalagið. Í nefndinni eiga sæti eftirfarandi fulltrúar þingflokkanna: Gylfi Þ. Gíslason Alþfl., Halldór S. Magnússon SF, Helgi Bergs Framsfl., Jóhann Hafstein Sjálfstfl. og Lúðvík Jósepsson Alþb. Enginn kostnaður hefur orðið við störf þessarar nefndar.
Viðskrn. hefur ekki ráðið neinn nýjan starfsmann eftir að núv. ríkisstj. kom til valda.“
Ég hef hér lesið þessa lista yfir nefndaskipanir og starfsmannaráðningar. Eins og ég tók fram, eru þau svör gefin af ráðuneytisstjórunum, og ég hygg að þeim upplýsingum, sem þar eru settar fram, megi treysta. Eins og menn hafa tekið eftir, þá er það í flestum tilfellunum, að um nefndir er að ræða, sem eiga að vinna tiltekin störf, t.d. samningu frv., og í mjög mörgum tilfellum hefur ekki verið um að ræða, a.m.k. ekki enn þá, neinar greiðslur til þeirra.
Viðvíkjandi nýjum starfsmönnum hef ég hér dregið saman yfirlit yfir það, hverjir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir, og ég skal fara með það í stuttu máli.
Við forsrn. hefur verið ráðinn ritari blaðafulltrúa ríkisstj., laun eru 322 830 kr. Í félmrn. og samgrn. hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ráðh. með 552 240 kr. árslaunum. Við fjmrn. hafa verið ráðnar þrjár aðstoðarstúlkur, sem ég las nú upp áðan, og Alvar Óskarsson bifreiðarstjóri og eftirlitsmaður. Laun þessa fólks í fjmrn. eru samtals 785 þús. 054 kr. Í ríkisendurskoðun hefur verið ráðinn einn nýr maður, Stefán Svavarsson, 449 þús. 484 kr., og í heilbr.- og trmrn. hefur verið ráðinn aðstoðarmaður og deildarstjóri, og eru laun þeirra 1 millj. 94 þús. 448 kr. Í iðnrn. hafa verið ráðnir tveir sérfræðilegir aðstoðarmenn. Laun þeirra eru 1 millj. 50 þús. kr. Við landbrn. hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ráðh. sem deildarstjóri, en ritari og fulltrúi hafa þar Íátið af störfum. Útkoman verður því sú, að launagreiðslur aukast þar ekki. Við sjútvrn. hefur verið ráðinn fulltrúi að 2/3 og svo aðstoðarmaður ráðh., sem ég nefndi áðan, og laun þarna eru 700 þús. Þá eru launagreiðslur þessar vegna nýrra starfsmanna taldar vera á ársgrundvelli 4 millj. 954 þús. 56 kr.
Ég sé nú ekki ástæðu til þess að fara að minnast á þau orð, sem hv. fyrirspyrjandi lét falla hér og áttu að vera gagnrýni á ríkisstj. Það má láta það bíða.