25.04.1972
Sameinað þing: 61. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í D-deild Alþingistíðinda. (5065)

931. mál, hækkun á verðlagi

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég tel það vera mjög mikilvægt fyrir hv. alþm. og fyrir allan almenning í landinu að fá um það vitneskju, hverjar hækkanir hafa orðið á einstökum vörum og þjónustuliðum undanfarna mánuði, hvaða áhrif þessar hækkanir munu hafa á framfærsluvísitölu og kaupgjaldsvísitölu og þar með kaupgjald. Það er enn fremur mikilvægt fyrir þm. og almenning að fá vitneskju um, hvaða hækkanir kunna að verða hjá bændum eftir því, sem um þær er vitað. Þess vegna er þessi fsp. fram borin.