16.05.1972
Sameinað þing: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1291 í D-deild Alþingistíðinda. (5097)
932. mál, leiguhúsnæði á vegum ríkisins eða ríkisstofnana
Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Ég hef hér á þskj. 560 undir lið nr. 2 beint fsp. til hæstv. forsrh. um leiguhúsnæði á vegum ríkisins og ríkisstofnana. Mér hefur verið bent á, að hagsýslan hefur með þetta húsnæði að gera, og væri þess vegna rökrétt að beina þessari fsp. til hæstv. fjmrh. Fsp. er í þremur liðum:
1. Hvert var leigugjald fyrir húsnæði, sem ríkið og ríkisstofnanir höfðu á leigu árið 1971?
2. Hvað er hér um marga fermetra að ræða?
3. Hvernig skiptist leigan eftir kjördæmum? Húsnæðismálin hefur nokkrum sinnum borið á góma, og nauðsynlegt er, að hv. þm. fái að kynnast því, hversu mikið húsnæði ríkið hefur á leigu, og þegar fjallað er hér um mikla framkvæmdaáætlun og í ljós kemur, að ríkið leigir mjög mikið húsnæði, er ekki óeðlilegt, að tekin sé um það afstaða eða a.m.k. rætt, hvort ekki sé nauðsyn, að ríkið byggi fyrir sína starfsemi eitthvert lágmark á hverju ári til að fullnægja eðlilegri eftirspurn. Sumar ríkisstofnanir hafa kvartað undan erfiðri aðstöðu, þegar fulltrúar þessara stofnana koma í fjvn., og mér fannst þess vegna eðlilegt að fá um þetta nokkurt yfirlit.