16.05.1972
Sameinað þing: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í D-deild Alþingistíðinda. (5117)

936. mál, hrygningarsvæði

Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. sjútvrh. fyrir mjög ítarlegt svar við þessari fsp. Ég tel það nauðsynlegt að fá upplýsingar um það viðhorf, sem fróðustu menn í þessum málum geta í té látið.

Þorskveiðarnar eru, eins og allir vita, veruleg undirstaða undir efnahagslífi þjóðarinnar eða þjóðartekjunum, og tel ég, eins og ég sagði, nauðsynlegt að fá að vita um horfurnar, hvort sem þær eru hagkvæmar eða ekki. Leyfi ég mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir hina ítarlegu grg., sem hann hér flutti.