20.12.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í B-deild Alþingistíðinda. (527)
1. mál, fjárlög 1972
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Vegna þeirra till., sem hv. síðasti þm. var hér að gera grein fyrir, vil ég aðeins taka það fram, að ég mun styðja þær till. og tek einmitt undir röksemdafærslu hennar fyrir þeim tili. Ég vil jafnframt lýsa yfir stuðningi mínum við till. hv. 1. þm. Norðurl. e., fyrri till. hans, og ég held, að við getum ekki verið það litlir menn hér á Alþ., að við getum ekki leyft okkur að veita 50 þús. kr. til varðveizlu þessara merku minja, sem hann einmitt getur um og leggur till. fram um, að varðveittar verði.
Full ástæða væri til þess að tala langt mál og halda langa ræðu um mál hv. 3. þm. Norðurl. v., og þó að ég fari nokkrum orðum um það, þá sé ég ekki, að ég þurfi neitt að skammast mín, fyrir það, þótt hann sé ekki mættur hér í þingsal, vegna þess að ég veit, að þessi hv. þm. gengur nú um meðal þeirra þm., sem ekki eru í sal, og spyr: Hvernig þótti ykkur snilld mín í þessari ræðu, sem ég flutti hér áðan? Að sjálfsögðu verða svörin við þeirri spurningu hans, sem hann hefur spurt þm. á undanförnum 12 árum, á þessa leið: Þín snilld er mikil og enginn er þér líkur, Björn bóndi. Það væri vissulega ástæða til þess að taka upp mörg af orðum hans, sem hann viðhafði í sinni ræðu hér. Margir munu álíta, sérstaklega fólk, sem á áheyrendapöllum er, og kannske nýrri þm.; að hér sé um mesta háðfugl þingsins að ræða. Svo er alls ekki. Þetta er líklega raunsæjasti þm. stjórnarliðsins í dag og var raunsæjasti þm. stjórnarandstöðunnar á sínum tíma, vegna þess að hann hefur vit á því að vera alltaf með, þegar á þarf að halda, með sínum flokki, en hins vegar, ef ekki þarf á að halda, er hann á móti til þess að skapa sér sína sérstöðu. Þetta hefur hann leikið í mörg ár og gerir enn. Þess vegna leyfir hann sér það hér í dag að tala um bæði stóra skatta ríkisstj., sem er vissulega satt og rétt hjá honum, og hann talar um það, sem hlýtur að vera samkv. hans röksemdafærslu, að von sé á aukningu hjónaskilnaða hér á landi vegna stefnu ríkisstj. Ég skal ekki draga það í efa. Ég tel það mjög mikið rétt, að flestar þær ákvarðanir, sem ríkisstj. hefur tekið fram til þessa, muni yfirleitt hafa áhrif á heimilislíf fólks í þessu landi, og má þakka fyrir, ef þar ekki reynir svo mikið á, eins og hv. þm. stjórnarflokkanna, Björn Pálsson, hefur þegar getið um.
En anzi er það skrýtið, þegar þessi hv. þm. talar um það í vælu- og skælutón, að fyrrv. ríkisstj. hafi lagt á svo og svo mikla skatta, og talar m.a. um launaskatt 21/2%. Því í ósköpunum leggur þessi þm. ekki fram till. um það, að þessi skattur verði lækkaður nú? Nú hefur hann tækifærið, nú hefur hann flokkana sína í ríkisstj., nú getur hann gert þetta. Meira að segja hv. þm., formaður þingflokks Framsfl., sem stendur þarna brosandi við útvegg, hann gæti stutt hann í þessu. Þetta er maðurinn, sem hefur flutt þessa till. með honum áður. Nú er tækifærið.
Það er alleinkennilegt í sambandi við afgreiðslu þessara fjárlaga, þegar hv. meiri hl. leggur okkur hér á borð áætlaðar tölur, ekki aðeins um hvað þjóðarframleiðslan verði, heldur einnig um þær tekjur, sem við munum hafa af annarri starfsemi. Ég hef hlustað á það í dag, að það var m.a. gerð áætlun um það, hvað þjónustustarfsemin mundi gefa okkur á næsta ári. Hafandi það í huga, að þjónustustarfsemin er að miklu leyti byggð upp á tekjum af okkar flugi, hafandi það í huga, að þessir sömu aðilar hafi kannske eyðilagt það bezta af því, sem við gátum haft úr úr fluginu og þeirri þjónustu, sem við eigum að geta veitt á Keflavíkurflugvelli, með því að víkja frá sér þeim stuðningi, sem við gátum haft í sambandi við fullkomnun flugbrautanna í Keflavík, þá er það, finnst mér, anzi skrýtið, þegar þessir sömu menn telja, að þessi tekjuliður, þjónustustarfsemi m.a. af þessari grein, muni ekki aðeins standa í stað, heldur muni hún einnig aukast. Svona má lengi telja. Það er talað um, að verðlag sjávarafurða verði það sama og fari hækkandi. Þetta er áætlað hjá þeim. Þeir kannske taka það ekki með í reikninginn, að samkv. þeirri ákvörðun, sem þeir sjálfir hafa tekið og reyndar við munum standa að með þeim í sambandi við útfærslu landhelginnar, þá eigum við það í vændum að lenda í stórkostlegu víðskiptastríði við aðalviðskiptaþjóðir okkar. Hvaða áhrif hefur það á þessa áætlun, sem þeir hafa lagt fram nú til fjárlaga fyrir árið 1972?
Þessi sami hv. þm. (BP) minntist nokkuð á það, að fyrir liggur nú fyrsta gengislækkun þessarar ríkisstj. Ég held, að það verði erfitt fyrir hæstv. ríkisstj. að komast hjá því að viðurkenna þá staðreynd, sem fram undan er, að það verður að lækka gengið, a.m.k. gagnvart dollar. Og hvar eru þá stóru orðin, sem voru hér fyrr á árum, þegar þáv. hæstv. ríkisstj. þurfti að leiðrétta gengið gagnvart gengisfellingu sterlingspundsins? En hvað stendur í Ólakveri? Var ekki þar heitið, að það skyldi aldrei verða gengisfelling hjá núv. hæstv. ríkisstj:? Eða hef ég kannske lesið kverið vitlaust? Ég veit, að hv. formaður þingflokks Framsfl. getur leiðrétt það.
Það voru nú satt að segja alls ekki þessi orð mín nú eða orð hv. 3. þm. Norðurl. v., sem ollu því, að ég kem nú upp í ræðustól. heldur sú brtt., sem hæstv. menntmrh. har fram hér í kvöld varðandi heiðurslaun listamanna. Nú legg ég áherzlu á það við ykkur, hv. þm., að sú ríkisstj., sem nú situr við völd hér á Alþ., hefur talið sig og telur sig og hennar stuðningsflokkar helztu stuðningsmenn lista og vísinda, mennta og annars slíks hér á landi, a.m.k. að eigin mati.
Við skulum líka hafa það í huga, að fjárlögin í ár hafa hækkað um fleiri milljarða heldur en nokkru sinni um getur í sögu íslenzkra stjórnmála eða fjármála, skulum við frekar orða það, hér á landi. Hæstv. menntmrh. ber það fram af rausn sinni, að í stað 11 listamanna, sem slíkra heiðurslauna njóti nú, skuli einum bætt við, sem fái 175 þús. kr. til viðbótar. Ég spyr, er það goðgá, þótt ég leyfi mér að leggja fram, sem ég mun gera brtt. við hans brtt. um það, að þessi fjöldi breytist úr 12 í 15? Ég minntist nokkuð á það í minni fyrri ræðu hér í kvöld, þótt engin till. lægi frammi um það frá mér, að það væri kannske karlmannlegt hlutverk þessa hv. þings, að konur væru á þessum lista, og minntist þar á tvær, sem hafa brotið sér stórmannlega braut, Guðrúnu frá Lundi og Svövu Jakobsdóttur. Hins vegar vil ég benda m.a. á menn, sem þarna eiga heima, án þess að ég geri till. um neitt, eins og Gunnlaug Scheving listmálara, Skúla Halldórsson tónskáld og Val Gíslason leikara, og sjálfsagt má fleiri upp telja. En aðeins til þess að benda á þessa aðila finnst mér, að það sé tímabært, að ég flytji þessa brtt. við till. hæstv. menntmrh., og ég vil leyfa mér að fara fram á, hæstv. forseti, að hún verði þá borin upp og leitað afbrigða, þannig að hún megi koma til umr.