21.12.1971
Sameinað þing: 28. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

1. mál, fjárlög 1972

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Fyrir hönd þm. Alþfl. vísa ég til þeirrar gagnrýni, sem við höfum flutt á fjárlagaafgreiðslu að þessu sinni, og munum við í samræmi við þann málflutning okkar ekki greiða atkv. um fjárlögin.