09.03.1972
Neðri deild: 49. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (605)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Eins og ég hef áður lýst í umr. um þetta frv. hér á hv. Alþ., þá verður endurskoðun haldið áfram, og ég hef jafnframt lýst yfir því, að við þá endurskoðun verði stefnt að því, að þeir, sem tekna afla, og einnig þeir, sem skattskyldar eignir eigi, verði gerðir að sjálfstæðum skattþegnum án tillits til hjúskaparstéttar. Ég vil endurtaka þetta og jafnframt leyfa mér að fara fram á það við hv. flm., að brtt. 411 verði tekin aftur, þar sem ég tel, að þetta eigi að nægja til þess að tryggja framgang málsins.