09.03.1972
Neðri deild: 49. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Eftir svo skýlausa yfirlýsingu hæstv. fjmrh. sé ég ekki ástæðu til þess, að till. mín sé hér borin undir atkv., og verð við þeim tilmælum hans að draga hana til baka, um leið og ég vil þakka honum fyrir að hafa komið svo skilyrðislaust til móts við það, sem í till. minni felst.