17.04.1972
Neðri deild: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í B-deild Alþingistíðinda. (850)
33. mál, Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. við eina gr. þessa frv., og er brtt. á þskj. 523 og hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Við próf 1., 2., 3. og 4. stigs skal auk kennarans, sem prófar, vera einn prófdómari í hverri grein, nema í siglingafræði skulu vera tveir prófdómarar, og skipar rn. prófdómara að fengnum till. skólastjóra.“
Breytingin frá frv. er í því fólgin, að í till. er gert ráð fyrir, að í einni aðalgrein við Stýrimannaskólann en það er í siglingafræði, skuli vera tveir prófdómarar ásamt þeim kennara, sem einnig prófar. Ég hef nokkuð kynnt mér þetta, síðan málið var hér síðast til umr., og samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, þá hefur það verið talið mjög eðlilegt og jafnvel nauðsynlegt, að í þessari aðalgrein í fræðslu stýrimannaskólanna yrði um að ræða tvo. prófdómara í staðinn fyrir einn. Í þessari grein eru tekin fjögur skrifleg próf og tvö munnleg, og verður því að teljast kannske til of mikils ætlazt, að þar sé aðeins um kennara ásamt einum prófdómara að ræða. Ég skal taka fram, að eldri lög gerðu ráð fyrir, að auk kennarans yrði um að ræða tvo prófdómara í öllum fallfögum. eins og þar er komizt að orði, en þar er um nokkur fleiri fög að ræða en siglingafræðina.