20.03.1972
Efri deild: 60. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (863)

4. mál, kaup á skuttogurum

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vildi gjarnan spyrjast fyrir um það, hvort búið væri að taka ákvörðun um, hvaða kaupendur væru hér á ferðinni og hvernig þessum 13 eða allt að 13 skuttogurum mundi verða ráðstafað.