23.03.1972
Efri deild: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í B-deild Alþingistíðinda. (930)

198. mál, Framleiðnisjóður landbúnaðarins

Frsm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Með lögum frá 20. des. s.l. um Framkvæmdastofnun ríkisins var Efnahagsstofnunin lögð niður, en hún hefur átt einn fulltrúa í stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Og þetta frv. fjallar um það, að sá fulltrúi, sem áður var í stjórn Framleiðnisjóðs frá Efnahagsstofnuninni, verði eftirleiðis frá Framkvæmdastofnun ríkisins. Landbn. leggur til, að frv. verði samþ.