08.03.1972
Neðri deild: 48. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (968)

7. mál, ríkisreikningurinn 1969

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. um samþykkt ríkisreiknings 1969 og tölur frv. hafa verið lesnar saman viðríkisreikninginn. Þess skal getið hér, að nm. barst bréf frá sýslumanni Húnavatnssýslu varðandi athugasemdir endurskoðenda, sem hann gagnrýnir. — N. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.