21.04.1972
Efri deild: 60. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (978)

7. mál, ríkisreikningurinn 1969

Frsm. (Bjarni Guðbjörnsson):

Herra forseti. Frv. þetta til laga um ríkisreikninginn fyrir árið 1969 hefur verið til athugunar í fjhn. Endurskoðendur ríkisreikninga hafa ekki vísað neinni aths. til aðgerða Alþ. og fjhn. hefur orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.