19.12.1972
Efri deild: 30. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (1041)
131. mál, vegalög
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins taka það fram, áður en til atkvgr. kemur, að með því að ljóst er, að samþykkt þessa frv. eykur ekki framkvæmdafé vegasjóðs, og einnig er um það að ræða, að eðlilegast væri að taka slíka endurskoðun á fjáröflun til vegaframkvæmda til meðferðar við afgreiðslu vegáætlunar eða við endurskoðun vegáætlunar, þá vil ég ítreka þau rök og taka undir þau rök, sem hv. frsm. minni hl. samgn. flutti hér áðan við umr. og lýsi mig samþykkan þeirri afstöðu, sem þar er tekin.