20.12.1972
Neðri deild: 32. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1575 í B-deild Alþingistíðinda. (1149)

95. mál, almannatryggingar

Forseti (Gils G.):

Þar sem m.a. hefur verið gerð grein fyrir því eða boðaðar hafa verið veigamiklar brtt. við þetta frv. og brtt, meiri hl. hv. n. hefur ekki enn verið útbýtt, tel ég eðlilegt að fresta umr. um stund, a.m.k. þar til útbýtt hefur veríð þeim brtt., sem boðaðar hafa verið, og hv. þdm. hafa fengið nokkurt tóm til þess að skoða þær.

Umr. er frestað og málið tekið út af dagskrá þessa fundar.