21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1641 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)

Umræður utan dagskrár

Bjarni Guðnason:

Herra forseti. Ég vil bara segja frá því, að ég er hæstánægður með svar hæstv. utanrrh. og fagna því mjög, hve ríkisstj. er jákvæð í þessu efni, og tel það í anda þeirrar nýju og djörfu stefnu í utanríkismálum, sem þessi ríkisstj. hefur staðið fyrir.