21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)

Þinghlé

Jóhann Hafstein:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir hönd okkar þm. fyrir hlýjar óskir í okkar garð, og fyrir hönd okkar sameiginlega vil ég einnig þakka hæstv. forseta fyrir ágæta samvinnu við okkur þm., röggsama fundarstjórn og réttsýna. Ég vil leyfa mér að óska hinum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, og ég vil mega vænta þess, að við hittumst heilir á nýju ári. Vil ég biðja hv. þm. að taka undir þakklæti mitt og heillaóskir til forseta með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.)