21.12.1972
Efri deild: 46. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1717 í B-deild Alþingistíðinda. (1305)

Þinghlé

Forseti (BJ):

Ég vil þakka hv. 2. þm. Reykv. fyrir hlýleg orð í minn garð og góðar óskir til mín og fjölskyldu minnar. Ég árétta árnaðaróskir mínar til hv. þdm. og óska þess, að við megum öll heil hittast á nýju ári, þegar d. tekur aftur til starfa. — Fundi slitið.