21.12.1972
Neðri deild: 40. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1722 í B-deild Alþingistíðinda. (1325)

Þinghlé

Forseti (GilsG):

Þar sem þetta verður síðasti fundur d. fyrir þinghlé, vil ég nota þetta tækifæri til þess að þakka öllum hv. þdm. ágætt samstarf við mig sem forseta. Hefur sérstaklega reynt á það samstarf nú hina síðustu annadaga fyrir jólin. Ég þakka einnig skrifstofustjóra og öðru starfsliði þingsins fyrir vel unnin störf. Að svo mæltu óska ég ykkur, hv. þdm., gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og vænti, að við megum öll hittast hér heil, þegar fundir hefjast að nýju á nýju ári.