05.02.1973
Efri deild: 52. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1807 í B-deild Alþingistíðinda. (1414)
120. mál, meðferð opinberra mála
Eggert G. Þorsteinsson:
Herra forseti. Allshn. hefur rætt þetta frumvarp á fundum sínum og er sammála um að mæla með samþykkt þess óbreytts, eins og það liggur fyrir. Efni málsins er ákaflega einfalt og þarf ekki langrar framsögu eða útskýringa við. Hér er fyrst og fremst um leiðréttingar á tölum að ræða varðandi sektir, og er efni frv. skýrt rækilega í grg. Eins og ég áðan sagði, mælir allshn. einróma með því, að frv. verði samþ. óbreytt.