26.10.1972
Sameinað þing: 8. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í B-deild Alþingistíðinda. (149)

Umræður utand dagskrár

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Eins og hæstv. forseti greindi í ummælum sínum áðan, þegar hann setti þennan fund hefur hæstv. forsrh. fjarvistarleyfi í dag. Ég tel því eðlilegast, að hv. 7. þm. Reykv. bíði með að spyrjast nánar fyrir um það, hvað ummæli forsrh. þýði, þangað til forsrh. getur sjálfur svarað því.