07.03.1973
Efri deild: 66. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2390 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)
Umræður utan dagskrár
Utanrrh. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Af því að þessi d. hefur svo góðan tíma, þá vona ég, að mér fyrirgefist, þó að ég segi hér aðeins örfá orð. Það verða aðeins fá orð og þá fyrst og fremst vegna þess, að ég vil taka undir það, sem hv. 5. þm. Vestf. hefur hreyft hér. Það er allt of ójafnt skipt verkefnum á milli d. og sérstaklega stjfrv. En þetta er því miður ekki neitt einsdæmi. Ég hef átt sæti í þessari hv. d. nú í nokkur ár, 6 ár, held ég, nánar til tekið, og ég minnist þess ekki, að í eitt einasta skipti þessi ár, sem ég hef átt hér sæti, hafi ekki rekið að því, að einhver þm. úr stjórnarandstöðuliðinu stæði hér upp og kvartaði undan því, að verkefni Ed. væru of við nögl skorin. Hv. 6. þm. Vestf. lét þess sjálfur getið, að hæstv. forsrh. hefði staðið hér í þeim sporum, meðan hann var aðaltalsmaður okkar framsóknarmanna í stjórnarandstöðu í þessari hv. d. Ég minnist þess, að ég hef haldið margar áþekkar ræður, kannske ekki alveg eins langar, en álíka efnisríkar, held ég, um það, að Ed. hefði of lítil verkefni. Og ég vil styðja þá kröfu hv. þm., að þessu verði breytt. Ég held, að skýringin á þessu sé nærtæk. Hún er vafalaust sú, að af 7 ráðh. sitja 5 í Nd. Þegar svo þar við bætist, að annar af þeim ráðh., sem eiga sæti í Ed., sá, er hér stendur, flytur ekki eitt einasta mál í samræmi við það, sem tíðkazt hefur í tíð fyrirrennara hans í sæti utanrrh., verður þessi mismunur milli d. enn meiri en tölurnar 5 og 2 gefa tilefni til. Ég held, að það sé mannleg árátta ráðh. að flytja málin í þeirri d., sem þeir eiga sæti í, og að þetta sé skýringin, bæði nú á þessu þingi og á fyrri þingum, sem ég hef gert hér að umtalsefni, að mönnum þyki hægara að flytja málin í þeirri d., þar sem þeir eiga sæti. En þetta er rangt. Þetta á ekki að vera svona. Það á að skipta verkefnunum jafnt á milli d., eftir því sem föng eru á. Ég er algerlega sammála hv. þm. um það.
Ég veit, að hæstv. forsrh, hefur brýnt það fyrir samráðh. okkar að dreifa málum á milli d., þó að reynslan hafi ekki orðið í samræmi við það algerlega, og ég veit og treysti því, að hæstv. forsrh. taki þessi mál til nýrrar meðferðar nú eftir aðfinnslu hv. þm.
Ég hef raunar ekki meira um þetta að segja, en mér fannst viðeigandi að taka undir þessa réttmætu kröfu þm. um, að verkefnunum verði skipt réttlátar og jafnar milli d. en verið hefur, — ekki af því, að Ed.-menn þurfi að fyllast leiðindum yfir því að vera vantreyst, — ég held, að það sé alls ekki ástæða til þess, — heldur fyrst og fremst vegna þess, að vinnan á Alþ. þarf að ganga fyrir sig og hún gengur ekki réttlátlega og réttilega fyrir sig, nema verkefnunum sé skipt og frv. séu flutt jöfnum höndum í Ed. og Nd. Og ég vona, að það verði á því lagfæring.