12.03.1973
Neðri deild: 63. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2472 í B-deild Alþingistíðinda. (1862)

Umræður utan dagskrár

Forseti (GunnG):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 8. marz 1973.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138 gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Karl G. Sigurbergsson skipstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Gils Guðmundsson,

4. þm. Reykn.“