13.03.1973
Sameinað þing: 57. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)
300. mál, rannsókn á jafnrétti þegnanna í íslensku þjóðfélagi
Fyrirspyrjandi (Svava Jakobsdóttir) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir greinargóð svör hans. Ég býst við, að það sé alveg rétt mat að fela þeirri stofnun, sem heitir „námsbraut í almennum þjóðfélagsfræðum“ þessa rannsókn. Það er mjög mikilvægt að fá til þess menn, sem búa yfir félagsfræðilegri þekkingu og kannske umfram allt þekkingu á þeim aðferðum, sem beita þarf við rannsóknir af þessu tagi. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þessa skýrslu. Ég mun kynna mér hana og hlakka raunar til að sjá, hvar þetta mál er á vegi statt, en vil þrátt fyrir þær upplýsingar, sem ráðh. gaf, leggja áherzlu á, að allt kapp verði lagt á, að þessu verki verði lokið sem fyrst.