20.03.1973
Sameinað þing: 60. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2593 í B-deild Alþingistíðinda. (1982)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :

„Reykjavík, 19. marz 1973.

Bjarni Guðbjörnsson, 4. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestf., Halldór Kristjánsson bóndi, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Björn Jónsson,

forseti Ed:

Halldór Kristjánsson hefur áður setið þingbekk á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfa.