21.03.1973
Efri deild: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2641 í B-deild Alþingistíðinda. (2025)
201. mál, happdrætti Háskóla Íslands
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Frv. þetta um breyt. á l. nr. 86 frá 31. des. 1963, um stofnun happdrættis fyrir Háskóla Íslands, er flutt að beiðni háskólarektors. Heimild háskólans til happdrættisrekstrar rennur út nú í árslok. Heimildin var fyrst veitt til 10 ára, en hefur síðan verið tvívegis endurnýjuð til 15 ára. Þar sem miklar byggingarframkvæmdir munu halda áfram á vegum háskólans um langt árabil, svo sem verið hefur nokkur undanfarin ár, er nauðsynlegt að fá happdrættisleyfið endurnýjað til næstu 15 ára, frá 1. jan. 1974 að telja.
Frv. gerir ekki ráð fyrir efnislegum breytingum á núgildandi lögum, öðrum en þeim, sem felast í ákvæðum um framlengingu happdrættisins og fækkun hlutamiða úr 65 þús. númerum í 60 þús. númer, þar sem heimiluð aukning um 5 þús. númer hefur ekki verið notuð, og er talið ólíklegt, að lagt verði út í stækkun happdrættisins með þeim hætti í fyrirsjáanlegri framtíð. Orðalag 1. gr. er gert nokkru skýrara með tilliti til áorðinna breytinga á lögum.
Í fskj. með frv. er gerð grein fyrir afkomu happdrættisins á síðustu árum og helztu viðfangsefnum háskólans, sem happdrættisféð rennur til. Vil ég leyfa mér að vísa til þess og sé ekki ástæðu til að endursegja það hér. Leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.