21.03.1973
Neðri deild: 67. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2684 í B-deild Alþingistíðinda. (2053)

206. mál, kaup og kjör yfirmanna á botnvörpuskipum

Stefán Gunnlaugsson:

Herra forseti. Ég vil í tilefni af aths. hæstv. sjútvrh. undirstrika það, að sú brtt., sem hér er verið að greiða atkv. um, er ekki um breytingu á kjarasamningum undirmanna, heldur er þetta um atriði, sem kæmi til viðbótar því, sem þeir hafa samið um. M. a. þess vegna segi ég já.