22.03.1973
Efri deild: 73. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2714 í B-deild Alþingistíðinda. (2065)
206. mál, kaup og kjör yfirmanna á botnvörpuskipum
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Það eru nokkur orð, þar sem vitnað var í af hæstv. félmrh., að einn ráðh. hefði haft samband við Hilmar Jónsson, formann Sjómannafélags Reykjavíkur. Ég kynnti mér málið, og það er rétt, hann hefur haft samband við hann, en Hilmar segir afdráttarlaust, að hæstv. ráðh., sem var sjútvrh., hafi sagt við sig í símanum: Ef við settum lög og ef við gerðum þetta og ef við hækkuðum hlutfallið, hvernig væri hans afstaða? Og Hilmar sagðist hafa svarað: Það verður þá að hafa það, við erum með bundna samninga og sækjum þetta strax og við getum. — Það var rétt, sem hæstv. ráðh, tók eftir í ræðu minni, að hér tel ég hættuna fólgna einmitt, að þetta leiði það af sér, dragi þann dilk á eftir sér, að undirmenn eða forsvaramenn undirmanna muni verða harðir næst, og er þeim það varla láandi, til að tryggja það, að ekki verði hallað á þá af hálfu hins opinbera, ef til vinnudeilna kemur.
Hæstv. ráðh. hefur veitt því athygli, að í samningunum, sem ég hef liggjandi hér á borðinu, er ekki komið til móts við hluta af skipshöfninni. Hins vegar tek ég orð hans þannig, og ég vildi, að það bærist til þeirra stéttarfélaga, að hann hefur haft um það góð orð hér í umr., að það er óréttmætt annað en þeir fái hliðstæða hækkun. Þetta er það, sem við erum að gagnrýna í stjórnarandstöðunni. Þeir hljóta að fá hliðstæða hækkun, annað væri ósæmandi. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir að sýna þann skilning, og ég treysti því, að þeir fái það, þeir undirmenn, sem þetta nær ekki til.
Ég vil ekki lengja meira þessar umr. Það er fyrst og fremst deilt um þetta atriði, og það er þegar komin ákveðin lausn á þessu atriði varðandi þessa menn. En ég fæ samt ekki varist því að gagnrýna það, þegar færri hásetar eru á dekkinu — þrátt fyrir aukna tækni og annað — og þeir þurfa að leggja meira að sér, að ef hásetinn fær þannig 1000 kr., þá skuli 1. vélstjóri fá 1500. En ef fækkað er um 4. manninn, sem ég tel, að muni verða í raunveruleikanum, þá fær enginn háseti hærra þess vegna, heldur taka hinir vélstjórarnir á sig þann hlut. Það getur vel verið, að um aukna vinnu sé að ræða, en það er líka um verulega aukna sjálfvirkni að ræða, og finnst mér einhvern veginn að öll skipshöfnin ætti að fá einhvern hlut í þeirri þróun.