27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2799 í B-deild Alþingistíðinda. (2167)
303. mál, orlof og þjónusta staðgöngumanna í landbúnaði
Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin. Ég tek það fram að ég felli mig vel við það, að unnið sé að þessu máli með þeim hætti, að álit kjörmannafundar á því, hvort þeir telji bændurnir sjálfir fái að fjalla um það með sem allra ítarlegustum hætti. Ef frv. er til, sem ég skildi ekki nákvæmlega hjá ráðh., þá er ég ánægður með þá málsmeðferð, að frv. sé vísað heim til hinna ýmsu búnaðarsambanda og það rætt á kjörmannafundum og þá tekin afstaða til þess, hver framgangur þess verður.
Um málið að öðru leyti vil ég segja það, að síðari hluti ályktunarinnar fjallar um þjónustu staðgöngumanna í landbúnaði, og sá þátturinn má ekki eftir liggja. Það er ljóst, að í mjög mörgum tilfellum mun bændum ekki reynast kleift að nýta orlofsréttinn, þó að hann verði fyrir hendi, ef ekki er um leið séð til þess, að þeir eigi aðgang að vinnuafli, sem getur tekið að sér að annast bústörfin, meðan þeir sjálfir og þeirra fólk er í orlofi.
Ég vil einnig ítreka það, að orlofsrétturinn þarf ekki síður að ná til húsfreyju en bónda, því að fáir í þessu þjóðfélagi munu vinna jafnlangan vinnudag og húsfreyjur í sveitum.
Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir það, sem fram hefur komið, og vænti þess, að þetta mál fái þann framgang, að unnt verði að sýna frv. um þetta efni á næsta Alþingi.