29.03.1973
Neðri deild: 73. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2861 í B-deild Alþingistíðinda. (2259)

46. mál, námulög

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson) :

Herra forseti. Frv. þetta liggur nú fyrir Alþ. í þriðja skipti. Á síðasta þingi var fjallað gaumgæfilega um það hér í hv. Nd. og hún afgreiddi það frá sér til Ed. Hins vegar vannst Ed. þá ekki tími til þess að ljúka sínum störfum. Þetta frv. var svo lagt fyrir Ed. snemma á þessu þingi, og Ed. er búin að fjalla um málið og sendir það nú til Nd. með fáeinum breytingum. Þar sem málið hefur verið svo vel kynnt hér áður, sé ég ekki ástæðu til að fara að rekja það efnislega, en legg til, að því verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. iðnn.