30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2898 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)

Fjarvistir framsögumanna

Forseti (Eyst. J.):

Áður en gengið er til dagskrár vil ég benda á, að undanfarið hafa verið talsverð brögð að því, að frsm. nál. hafa ekki verið viðstaddir, þegar þau hafa verið tekin fyrir, án þess að hafa gert grein fyrir fjarveru sinni. Framvegis verða nál. tekin fyrir, þótt enginn frsm. finnist, nema þeir hafi gert viðhlítandi grein fyrir fjarveru sinni.