30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2899 í B-deild Alþingistíðinda. (2284)

45. mál, lagasafn í lausblaðabroti

Frsm. (Jónas Árnason) :

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál, á þskj. 315, hefur allshn. athugað þessa till. og leitað álits á henni hjá Lögfræðingafélagi Íslands og Dómarafélagi Íslands og dóms- og kirkjumrn. Svör þessara aðila eru jákvæð, og n. mælir einróma með samþ. till.