02.04.1973
Efri deild: 81. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2934 í B-deild Alþingistíðinda. (2319)

209. mál, sala Dysja í Garðahreppi og Háagerði í Dalvíkurhreppi

Fram. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Landbn. hefur athugað frv. þetta og leitað álits landnámsstjóra og deildarstjóra jarðeignadeildar ríkisins um sölu 16.5 ha. úr landi Pálshúsa í Garðahreppi. Þeir aðilar eru báðir samþykkir því, að þetta frv. nái fram að ganga. Að öðru leyti vísa ég til þeirrar ræðu, sem hv. 3. þm. Reykn. flutti við framsögu málsins. N. leggur einróma til, að frv. verði samþykkt óbreytt.