03.04.1973
Sameinað þing: 66. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2999 í B-deild Alþingistíðinda. (2372)

9. mál, lánsfé til hitaveituframkvæmda

Jón Skaftason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Þar sem ég álít, að efni þeirrar þáltill., sem hér er til umr., sé afar þýðingarmikið og lánsútvegun til þessara framkvæmda sé þjóðfélagslega ákaflega hagkvæm, vil ég undirstrika, að þó að ég greiði atkv. með till. hv. fjvn. um að vísa þessu máli til hæstv. ríkisstj. til fyrirgreiðslu, má á engan hátt skoða það þannig, að ég sé á móti málinu, enda tel ég mig vera í góðum félagsskap í þeirri atkvgr., þar sem ég fæ ekki betur séð en annar af hv. flm. þessarar þáltill. leggi það til sjálfur.