04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3041 í B-deild Alþingistíðinda. (2436)

124. mál, vátryggingarstarfsemi

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Út af þeirri aths., sem ég lét falla hér áðan, og þeim tilmælum til hæstv. forseta að fresta afgreiðslu þessa frv., vil ég taka það fram, að ég lít svo á við nánari skoðun, að í frv. felist heimildir, sem telja verður, að séu fullnægjandi í því efni, sem ég vakti athygli á, og ég hafði ekki tekið eftir fyrr. Ég sé því ekki ástæðu til að óska eftir því, að afgreiðsla frv. sé tafin meira af þessum sökum en þegar er orðið.