04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3042 í B-deild Alþingistíðinda. (2444)

183. mál, lögreglustjóri í Hafnarhreppi í Austur-Skaftafellssýslu

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Á þskj. 472 er álit allshn. varðandi frv. til l. um lögreglustjóra í Hafnarhreppi í Austur-Skaftafellssýslu. N. mælir með samþykkt frv., eins og það hefur verið samþ. í Ed., en einn nm. Pétur Pétursson, skrifar undir með fyrirvara og áskilur sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. Ég sé ekki ástæðu til að skýra þetta mál neitt nánar, það hefur þegar verið gert.